Enski boltinn

Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búnings­klefanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran er stuðningsmaður Ipswich sem komst í gær upp í ensku úrvalsdeildina.
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran er stuðningsmaður Ipswich sem komst í gær upp í ensku úrvalsdeildina. Getty/ Stephen Pond

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran segir uppkomu Ipswich, eftir öll vonbrigðin síðustu ár, vera táknmynd um fegurð fótboltans.

Það varð allt vitlaust í Ipswich borg í gær þegar fótboltafélag borgarinnar tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í 22 ár. Það var líka fagnað hinum megin við Atlantshafið.

Einn allra frægasti stuðningsmaður Ipswich Town liðsins er enski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran.

Þegar félagið var síðast í ensku úrvalsdeildinni þá var Sheeran aðeins ellefu ára gamall og nýbúinn að læra á gítar. Hann varð síðan ein stærsta tónlistarstjarna heims, hefur selt milljónir platna og unnið til alls konar verðlauna.

Sheeran hefur stutt félagið sitt í gegn súrt og sætt en Ipswich var í D-deildinni fyrir nokkrum árum síðan.

Hann hefur líka verið í miklum samskiptum við liðið í aðdraganda leiksins í gær og var þannig í myndsímtali við búningsklefann eftir sigurinn á Huddersfield. ESPN var með myndatökumann með tónlistarstjörnunni þegar Sheeran fylgdist með sínum mönnum.

Sheeran komst ekki á leikinn en hann er staddur í Miami í Bandaríkjunum og fylgdist því með leiknum eldsnemma um morgun á staðartíma.

„Ég bý rétt fyrir utan Ipswich og hef séð félagið fara í gegnum mjög erfiða tíma. Ég veit líka að það að komast í ensku úrvalsdeildina mun koma með mikla spennu og gleði inn í fótboltafélagið. Það er líka gaman að sjá hvernig svona árangur lyftir allir borginni upp sem er mjög mikilvægt,“ sagði Ed Sheeran við ESPN.

„Það sem er svo stórkostlegt við fótboltann en að það er svo erfitt að reikna hann út og þú veist aldrei hvað er að fara að gerast. Við höfum sex stærstu félögin missa fótanna og við höfum séð lið eins og Leicester vinna ensku úrvalsdeildina. Við vitum ekki hvað gerist hjá okkur á næsta tímabili en það væri frábær árangur á mínu mati ef við höldum okkur uppi,“ sagði Sheeran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×